12.9.2009 | 21:18
Að vinna í lottóinu!
Ég er einn af þeim sem tek aldrei þátt í lottó af því ég hef ekki trú á því að ég muni vinna. En hef oft pælt í þessu, ef maður fengi nú fyrsta vinninginn. Tala nú ekki um svona í miðri kreppu. Myndi maður ekki bara sleppa því að segja fólki frá þessu og drífa sig bara úr landi á meðan enginn sér til.
Ég kaupi nú aldrei lottó miða nema þegar mér finnst fyrsti vinningurinn freistandi. Ef ég myndi vinna í lottói þá myndi ég ekki segja nokkrum einasta manni, hvað þá konu frá því.
Stofna mitt eigið fyrirtæki ef ég væri viss um að það myndi vera markaður fyrir það, eða ég myndi flytja út og koma aftur þegar betur stendur á hér á landi.
Sennilega myndi ég samt bara borga upp lánin mín og búa áfram á íslandi, held að skuldlaust fólk hér á landi hafi það ekki sem verst á þessum tímum, þó allt sé dýrara þá er amk betra að búa á íslandi í kreppu skuldlaus heldur en skuldugur, það er alveg á tæru.
Lottóvinningur gekk ekki út | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
11.9.2009 | 21:07
Reykingar
Núna í síðustu viku var ég staddur í mjóddinni um kvöldmatarleitið og var að labba í bílinn minn útá plani. Kemur þá ekki 12 ára strákur c.a. og spyr hvort ég reykti og hvort ég gæti gefið honum eina rettu.
Vissulega átti ég ekkert slíkt til en þetta vakti mig mjög svo til umhugsunar að sjá þarna 12 ára krakka bettla sígarettu. Datt það ekki til hugar að börn væru farin að reykja þetta ung.
Ég hef hugsað svolítið um málið öðruvísi undanfarið. Hvað ef sígarettur hefðu aldrei verið til, engar pípur og í raun ekkert sem hægt væri að reykja og engum hefði dottið það til hugar.
Hvað ef sígarettur væru fyrst núna að verða til, þetta fengi ALDREI að fara í sölu hvergi í heiminum.
Ef einhver væri að finna upp sígaretturnar fyrst í dag. Yrði honum ekki bara stungið í fangelsi fyrir að framleiða fíkniefni.
Færu sígarettur undir einhvern annan hatt en e-töflu, amfetamín og hvað þessi fíkniefni öll heita.
Kostnaðurinn við það að reykja er gífulegur.
Einstaklingur sem reykir einn pakka á dag er að eyða 22.500 krónum í sígarettur á mánuði eða 270 þúsund kalli á ári. Þannig að reykingarmaður sem er með 270 þúsund kall á mánuði stritar og púlar í vinnuni í heilan mánuð á hverju ári bara til þess að geta keypt sér sígarettur allt út árið.
Er ekki svolítð ósanngjarnt að þurfa að strita í vinnunni heilan mánuð til þess að geta keypt sér eitthvað sem drepur þig?
Út í heimi sitja ríkir kallar hjá tóbaksfyrirtækjunum og hagnast á því að fólk stitti sér aldur með reykingum.
En reykingarnar eru ávanabindandi og fyrir stuttu hitti ég mann sem árið 2001 minnir mig hætti alveg reykingum. Þegar hann reykti þá reykti hann þrjá pakka á dag. Sem segir okkur það að hann hefur reykt fyrir 2.550 krónur á dag.
Eða 810 þúsund kall á ári.
Ef ísland myndi verða fyrsta landið í heiminum til þess að hætta alfarið sölu á tóbaki myndi ég halda að fyrrum reykingamenn myndu nú hafa meiri pening milli handanna. Fólk talar stöðugt um að sígaretturpakkinn sé of dýr en á samt allta efni á því að kaupa hann.
Mér finnst samt ekki nema sanngjarnt að ríkið taki þá þátt í því að hjálpa fólki að hætta að reykja sem er enn að klást við fíknina ef að þessu banni verður. Og held ég að það væri gott fyrir alla ef tóbak yrði tekið úr sölu í áföngum hægt og bítandi.
Reykingar drepa!
Tóbak verði tekið úr almennri sölu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
4.1.2009 | 16:21
The Drover's Ballad úr kvikmyndinni Australia
Mikið er lokalag kvimyndarinnar Australia flott. Heitir The Drover's Ballad og er samið og sungið af Elton John.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
31.12.2008 | 15:04
Hvað er að þessu fólki?
Vá sko af hverju mátti ekki stöð 2 bara fá að senda út kryddsíldina í friði. Botna ekkert í því af hverju mótmælendur eru að stórskemma útsendingarbúnað og kapla. Þetta er komið útí öfgar. Þetta eru ekki friðsæl mótmæli. Þetta er bara fólk sem finnst gaman að skemma og eyðileggja. Og verst var auðvitað að þeir þurftu að hætta að senda út þannig nú finnst mótmælendunum þeir hafa náð árangri.
Er ekkert á móti mótmælum en þetta er bara algjört rugl og á ekki að líðast.
Kryddsíld lokið vegna skemmdarverka | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.10.2008 | 01:47
Ameríkaninn sagði....
Johnny Cash." And an Icelander replied: "We have Geir Haarde, no
Wonder, no Hope and no Cash...
Hryðjuverkalög gegn Landsbanka | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
6.10.2008 | 18:26
Krónan er ónýt og næstum verðlaus...
Sér ekki þessi ríkisstjórn að krónan er ónýt... Hér verður að taka upp efru og ganga í evrópusambandið.. Skítt með það þó við missum sjálfstæðið, treysti evrópusambandinu miklu betur til þess að ráða yfir íslandi heldur en íslensku ríkisstjórninni.
Ef þetta heldur svona áfram verður ísland orðin eyðieyja árið 2010.. Fólk flýr land á endanum og ég sem er svo ánægður með vinnuna mína hér á íslandi og leiðinlegt að þurfa að flytja frá henni en það gerist á endanum ef ekkert verður að gáð..
Þegar það er vafamál hvort það komi meira bensín til landsins og hvort að erlendar vörur komi aftur í verslanir þá er ástandið orðið MJÖG slæmt.. Og svo segir ríkisstjórnin að evrópusambandsaðild sé ekki á dagskrá.. Hvað er að??
Þetta verður án efa kostningamálið í næstu ríkisstjórnarkostningum. Held að sjálfstæðisflokkurinn fái ekki neitt fylgi ef hann ætlar að halda áfram í krónunni.. Samfylkingin vill inní evrópusambandið en sjálfstæðisflokkurinn stoppar það alltaf... Það á að loka seðlabanka íslands hið snarasta og taka upp evru.. Það er allt að fara í hundana hérna..
Ísland er of lítið land til þess að hafa sinn eigin gjaldmiðil, við erum bara 300.000.
Gengi krónunnar veiktist um 11,65% | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
30.9.2008 | 09:28
Ojjj bara ullabjakk
Var frystikistan kannski læst utanfrá og börnin sem höfðu klifrað ofaní frystikistuna læsts þar ofaní... nei maður spyr sig bara....
Ojj bara ojj bara ojj bara ullabjakk
Barnslík í frystikistu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.9.2008 | 09:31
Í bréfinu þínu....
In your letter ooh in your letter
In your letter ooh in your letter
In your letter ooh in your letter
In your letter ooh in your letter
In your letter you said you didnt love me
You said youre gonna leave me
But you couldve said it better
Oh in your letter, you said you couldnt face me
You said you could replace me
But you couldve said it better
You couldve left him only
For an evening let him be lonely
But you hid behind your poison pen and his pride
You couldve told him something
And proved to me you dont love him
But you hid behind your future full of lies
Instrumental bridge
You couldve left him only
For an evening let him be lonely
But you hid behind your poison pen and his pride
You couldve told him something
And proved to me you dont love him
But you hid behind your future full of lies
In your letter you said you didnt love me
You said youre gonna leave me
But you couldve said it better
Oh in your letter, you said you couldnt face me
You said you could replace me
But you couldve said it better
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
28.9.2008 | 22:24
Stjörnuspáin mín
VOG:
Einhver reynir að sýna þér stuðning, en gerir það líklega á kolrangan hátt. Leiðbeindu honum. Láttu vita hvernig þú vilt láta hjálpa þér - og þakkaðu fyrir þig.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Gunnar Ásgeir Ásgeirsson
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar